Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur hækkað um 0,7% og er 4.943 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Veltan nemur 10,4 milljörðum króna.

Stærstu viðskipti dagsins nema 7,2 milljöðrum króna með bréf FL Group [ FL ] á genginu 9,5 krónur á hlut. Um er að ræða 5,6% af heildarhlutafé fjárfestingafélagsins.

Þar á eftir koma 726 milljónir króna með bréf Kaupþings [ KAUP ] á genginu 843.

Danska vísitalan hefur hækkað um 1,2%, norska vísitalan OBX hefur hækkað um 1,8% og sænska vísitalan OMXS hefur hækkað um 2%, samkvæmt upplýsingum frá Euroland.

Century Aluminium [ CENX ] hefur hækkað 2,8%, FL Group [ FL ] hefur hækkað um 1,6%, Spron [ SPRON ] hefur hækkað um 1,4%, Glitnir [ GLB ] hefur hækkað um 1,2% og Landsbankinn [ LAIS ] um 1,1%.

Eimskip [ HFEIM ] hefur lækkað um 3%, 365 [ 365 ]hefur lækkað um 0,7%, Alfesca [ A ] og Össur [ OSSR ] hafa lækkað um 0,6% og Eik banki [ FO-EIK ] hefur lækkað um 0,5%.

Gengi krónu[ OMX ISK ] hefur veikst um 0,1% og er 136,6 stig.