Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 1,12% og er 7.804 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni. Veltan nemur 4,4 milljörðum króna.

FL Group hefur hækkað um 2,76% en félagi birti uppgjör sitt í morgun, Kaupþing hefur hækkað um 2,25%, Exista hefur hækkað um 0,64%, Landsbankinn hefur hækkað um 0,44% og Bakkavör Group hefur hækkað um 0,29%.

Mosiac Fashions hefur lækkað um 0,59%, Icelandair Group hefur lækkað um 0,37% og Marel hefur lækkað um 0,26%.

Gengi krónu hefur veikst um 0,19% og er 118,5 stig.