Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 2,7% og er 5.420 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Veltan nemur 3,7 milljörðum króna.

Alfesca hefur hækkað um 0,15% og viðkiptum sem nema 1,5 milljónum k´rona.

FL Group hefur lækkað um 4,6%, Spron hefur lækkað um 4,4%, Kaupþing hefur lækkað um 4%, Exista hefur lækkað 3,3% og Föroya banki hefur lækkað um 3,13%.

Gengi krónu hefur veikst um 1,8% og er 124,6 stig við hádegi.