Úrvalsvísitalan lækkar um 1,39% og er 5.811,60 stig á hádegi. Við lok markaða á föstudaginn var stóð Úrvalsvísitalan í stað.

Tvö fyrirtæki hækka það sem af er degi. Mosaic Fashions hækkar um 2,25% og Marel hækkar um 0,14%.

FL Group lækkar um 5,56%, Glitnir lækkar um 3,89%, Landsbankinn lækkar um 3,27%, Alfesca lækkar um 2,70% og Atorka Group lækkar um 2,50%.

Gengisvísitala íslensku krónunnar hækkar um 1,61% og er 122,64 stig.