Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,41% og er 5.327,86 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni og nemur veltan um 780 milljónum.

Flaga Group hefur hækkað um 3,49%, Straumur-Burðarás hefur hækkað um 1,27%, Glitnir hefur hækkað um 1,17%, Landsbankinn hefur hækkað um 0,96% og Avion hefur hækkað um 0,93%.

Atorka Group hefur lækkað um 2,48%, Össur hefur lækkað um 0,94% og Bakkavör Group um 0,21%.

Gengi krónu hefur styrkst um 0,60% og er 124,67 stig, samkvæmt upplýsingum frá Glitni.