Úrvalsvísitalan hefur nú lækkað um 0,2% frá því opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 11:55 í 4.240 stigum. Úrvalsvísitalan hafði í morgun hækkað um 0,1%.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu lækkanir einstakra félaga en færeysku bankarnir leiða lækkanir dagsins.

Velta með hlutabréf er um 700 milljónir. Þar af eru um 205 milljónir með bréf í Kaupþing, um 135 milljónir með bréf í Glitni og um 120 milljónir með bréf í Landsbankanum en talsvert minni velta er með hlutabréf í öðrum félögum.

Krónan hefur veikst um 1,2% frá opnum gjaldeyrismarkaða og er gengisvísitalan nú 154,5 stig.