Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,58% og er nú 6068 stig, samkvæmt upplýsingum Kauphallarinnar.

Velta með hlutabréf í Kauphöllinni var rúmlega 1,4 milljónir á hádegi í 115 viðskiptum.

FL Group hefur hækkað um 1,63%, Straumur Burðarás um 1,21%, Landsbankinn um 1,19% Alfesca um 1,07% og Kaupþing Banki um 0.96%.

Aðeins eitt félag hefur lækkað í dag en það er Flaga Group sem hefur lækkað um 0,76% það sem af er degi.

Krónan er nú 1% veikari en í upphafi dags og stendur gengisvísitalan í 125,3 stigum, samkvæmt upplýsingum frá Kaupþingi banka.