Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,5% frá því að opnað var fyrir viðskipti kl. 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 12:15 í 638 stigum samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,5% í gær og hélt áfram að hækka við opnun í morgun.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga.

Atorka hefur hækkað um 25% og Bakkavör um tæp 13%. Lítil viðskipti eru þó á bakvið hækkun Atorku eða rétt tæp 600 þúsund krónur.

Velta með hlutabréf er tæpar 16 milljónir króna en þar af eru rúmar 14 milljónir króna með bréf í Bakkavör.

Þá er velta fyrir tæpar 2 milljónir króna með bréf í Century Aluminum.