Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur hækkað um 1,1% frá því opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 12:00 í 3.845 stigum.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,3% í gær en hefur hækkað jafnt og þétt frá opnun í morgun.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga.

Velta með hlutabréf er um 8 milljarðar en þar af eru tæpar tæpir 5,9 milljarðar með bréf í Glitni [ GLB ] en í morgun fóru fram viðskipti fyrir um 5 milljarða króna eins og áður hefur komið fram.

Þá er velta fyrir um milljarða með bréf í Kaupþing [ KAUP ], um 720 milljónir með bréf í Landsbankanum [ LAIS ] og um 115 milljónir með bréf í Exista [ EXISTA ] en minn velta er með bréf í öðrum félögum.

Krónan stendur nú hins vegar í stað frá því í morgun og hefur sveiflast nokkuð í morgun en hún hafði um tíma veikst um tæpt prósent. Gengisvísitalan er nú 175,8 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis en hvern einasta dag í þessari viku hefur veiking krónunnar slegið met.