Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 1,4% frá því að opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 12:00 í 4.281 stigi, samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 1,5% í gær og hefur hækkað jafnt og þétt frá opnun í morgun.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga.

Velta með hlutabréf er tæpir 1,5 milljarðar og þar af eru tæpar 500 milljónir króna með bréf í Glitni.

Þá er velta fyrir rúmar 300 milljónir með bréf í Straum, tæpar 290 milljónir í Kaupþing, tæpar 180 milljónir í Landsbankanum og tæpar 110 milljónir í Alfesca en nokkuð minni velta er með bréf í öðrum félögum.

Krónan hefur nú veikst skyndilega um 0,8% eftir að hafa styrkst um allt að 0,7% í morgun. Gengisvísitalan er nú 179,5 stig.