Úrvalsvísitalan hefur hækkað um  0,5% frá því að opnað var fyrir viðskipti kl. 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 12:00 í 668 stigum samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 2,2% í síðustu viku en hækkaði lítillega við opnun í morgun.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga.

Velta með hlutabréf er tæpar 135 milljónir króna en þar af eru tæpar 80 milljónir með bréf í Össur.

Þá er velta fyrir rúmar 50 milljónir króna með bréf í Bakkavör.