Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 1,3% frá því að opnað var fyrir viðskipti kl. 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 12:05 í 662 stigum samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,1% í gær og hefur jafnt og þétt frá opnun í morgun.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga. Atorka leiðir hækkanir dagsins en félagið hefur hækkað um 16,1%. Viðskipti með bréf í félaginu nema þó aðeins rúmum 54 þúsund krónum.

Velta með hlutabréf er rúmar 170 milljónir króna en þar af eru tæpar 110 milljónir með bréf í Össur.

Þá er velta fyrir tæpar 60 milljónir króna með bréf í Marel.