Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur hækkað um 1,6% frá því opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 12:05 í 4.384 stigum.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir einstakra félaga. Sú tafla hefur breyst frá því í morgun þar sem Exista [ EXISTA ] hækkaði nokkuð nú undir hádegi auk þess sem Spron [ SPRON ] er eina félagið sem hefur lækkað.

Velta með hlutabréf er um 1,5 milljarður króna. Klukkan hálf ellefu í morgun var veltan aðeins um 320 milljónir þannig að töluverð viðskipti hafa farið fram síðan þá.

Mest er veltan með bréf í Landsbankanum [ LAIS ] eða um 500 milljónir. Þá er velta fyrir bréf í Kaupþing [ KAUP ] um 360 milljónir, með bréf í Glitni [ GLB ] um 250 milljónir, í Straum [ STRB ] um 220 milljónir og í Exista um 180 milljónir en nokkuð minni velta er með bréf í öðrum félögum.

Krónan hefur styrkst í morgun um 0,5% en gengisvísitalan er nú 156,8 stig.