Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,9% frá því að opnað var fyrir viðskipti kl. 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 12:00 í 658 stigum samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Þá hefur krónan styrkst um 9,3% og stendur gengisvísitalan nú í 196,5 stigum.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 1,3% á föstudag og hefur hækkað jafnt og þétt í morgun.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga en ekkert félagð hefur lækkað í morgun.

Velta með hlutabréf er um 182 milljónir króna en þar af eru tæpar 110 milljónir króna með bréf í Marel.

Þá er velta fyrir rúmar 58 milljónir króna með bréf í Össur og tæpar 13 milljónir króna með bréf í Bakkavör.