Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,3% frá því að opnað var fyrir viðskipti kl. 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 12:05í 646 stigum samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Þá hefur krónan styrkst um 10,7% og stendur gengisvísitalan nú í 213,5 stigum.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,8% í gær og hefur rokkað nokkuð við núllið í morgun.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga. Enn hækkar Atorkar mikið, um 27,3% í morgun í litlum viðskiptum en viðskipti með bréf í félaginu nema aðeins um 280 þúsund krónum það sem af er degi.

Velta með hlutabréf er um 152 milljónir króna en þar af eru um 85 milljónir króna með bréf í Össur.

Þá er velta fyrir tæpar 57 milljónir króna með bréf í Marel.