Úrvalsvísitalan (OMXI6) hefur lækkað um 0,4% frá því að opnað var fyrir viðskipti kl. 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 12:05 í 892 stigum samkvæmt Markaðsvaktinni.

Vísitalan hækkaði um 0,1% í gær en hefur mjakast niður á við í morgun.

Gamla Úrvalsvísitalan (OMXI15) hefur lækkað um 0,5% og stendur nú í 327 stigum.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga í Kauphöllinni en aðeins eitt félag, Bakkavör hefur hækkað í morgun. Þá leiðir Straumur lækkanir dagsins.

Velta með hlutabréf er sáralítið eða aðeins um 15 milljónir króna en þar af eru tæpar 8 milljónir króna með bréf í Straum.

Þá er velta fyrir um 4 milljónir króna með bréf í Marel og rúm milljónir krónur með bréf í Össur.