Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur lækkað um 1,1% frá því opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 12:00 í 4.176 stigum.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 1% í gær en hóf að lækka strax við opnun markaða í morgun. Hún hefur þó lítið breyst frá því um kl. 10:15.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga en ekkert félag hefur hækkað í Kauphöllinni í morgun.

Velta með hlutabréf mikil miðað við síðustu daga eða um 2,4 milljarðar. Þar af eru rúmar 680 milljónir með bréf í Alfesca [ A ], tæpar 660 milljónir með bréf í Teymi [ TEYMI ], rúmar 300 milljónir með bréf í Kaupþing [ KAUP ], tæpar 260 milljónir með bréf í Landsbankanum [ LAIS ] og tæpar 170 milljónir með bréf í Glitni [ GLB ] en minni velta er með bréf í öðrum félögum og engin velta í öðrum.

Krónan hefur veikst um 0,8% í morgun og er gengisvísitalan nú 160,1 stig.