Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,2% frá því að opnað var fyrir viðskipti kl. 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 12:05 í 354 stigum samkvæmt Markaðsvaktinni.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,1% í gær og hefur rokkað nokkuð við núllið í morgun.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga en ekkert félag hefur hækkað það sem af er degi.

Velta með hlutabréf er um 133 milljónir króna en þar af eru tæpar 89 milljónir króna með bréf í Össur.

Þá er velta fyrir tæpar 24 milljónir króna með bréf í Marel og rúmar 18 milljónir króna í Straum.