Úrvalsvísitalan (OMXI6) hefur lækkað um 0,5% frá því að opnað var fyrir viðskipti kl. 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 12:00 í 888 stigum samkvæmt Markaðsvaktinni.

Vísitalan lækkaði um 1,1% í gær.

Gamla Úrvalsvísitalan (OMXI15) hefur lækkað um 0,3% og stendur nú í 330 stigum.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga í Kauphöllinni.

Velta með hlutabréf er um 90 milljónir króna en þar af er 51 milljón króna með bréf í Marel.

Þá er velta fyrir tæpar 30 milljónir króna með bréf í Össur og rúmar 5 milljónir króna með bréf í Straum.