Úrvalsvísitalan (OMXI6) hefur hækkað um 0,5% frá því að opnað var fyrir viðskipti kl. 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 12:00 í 900 stigum samkvæmt Markaðsvaktinni.

Vísitalan lækkaði um 0,7% fyrir helgi.

Gamla Úrvalsvísitalan (OMXI15) hefur hækkað um 0,2% og stendur nú í 331 stigi.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga í Kauphöllinni.

Velta með hlutabréf er um 87 milljónir króna en þar af eru rúmar 35 milljónir króna með bréf í Marel.

Þá er velta fyrir tæpar 31 milljónir króna með bréf í Össur og um 18 milljónir króna með bréf í Straum.