Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,1% frá því að opnað var fyrir viðskipti kl. 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 11:55 í 652 stigum samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 2% á föstudag en lækkaði engu að síður um 1,2% í síðustu viku.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga.

Velta með hlutabréf er rétt rúmar 900 þúsund krónur en þar af eru um 450 þúsund krónur með bréf í Bakkavör. Þá er velta fyrir um 250 þúsund með bréf í Marel og rúmar 110 þúsund krónur með bréf í Eimskip.

Aðeins 13 viðskipti hafa farið fram með hlutabréf í morgun.