Úrvalsvísitalan hækkar um 0,80% og er 6.345,25 stig.

Kaupþing banki hækkar mest, eða um 3,28%. Gengið hefur sigið lítillega því í morgun fór það yfir 4%. FL Group hækkar næst mest eða um 0,79%, vert er að geta þess að aðalfundur félagsins er á morgun. Marel hækkar um 0,69%.

Straumur-Burðarás lækkar um 1,10%, Alfesca lækkar um 0,74% og Landsbankinn hækkar um 0,72%.