Hlutabréf Kaupþings hafa hækkað um 3% það sem af er dags og var síðasta viðskiptagengi nú um hádegi 774 krónur á hlut. Útvalsvísitalan hefur hækkað um 1,3% eða liðlega 67 punkta.

Bréf Actavis hafa hækkað um 1,9%, Landsbankans um 1,88% og FL Group um 1,11%. Bréf þriggja félaga hafa lækkað, mest bréf Flögu um 1,7% og Bakkavarar um 1,4%, en stjórn félagsins hefur ákveðið að nýta sér heimild til að auka hlutafé í kjölfar þess að Kaupþing nýtti sér breytirétt á skuldabréfum.