Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur hækkað um 0,3% frá því opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 12:10 í 4.222 stigum.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu lækkanir einstakra félaga.

Velta með hlutabréf var lítil fram undir hádegi eða aðeins um 300 milljónir.

Á hádegi fór þó fram ein stök viðskipti með bréf í Kaupþing [ KAUP ] fyrir um 4,1 milljarð. Um er að ræða sölu á 5,7 milljón hlutum á genginu 722 sem er meðalgengi félagsins í dag. Kaupþing hefur það sem af er degi hækkað um 0,4%.

Velta með hlutabréf er því orðin um 4,4 milljarðar en eins og fyrr segir er ekki mikil velta með bréf í öðrum félögum.

Velta með bréf í Glitni [ GLB ] er tæpar 117 milljónir, í Landsbankanum [ LAIS ] hafa um 90 milljónir skipt um hendur í morgun en en talsvert minni velta er með hlutabréf í öðrum félögum.

Krónan hefur styrkst um 0,7% frá opnum gjaldeyrismarkaða og er gengisvísitalan nú 158,7 stig.