Hlutabréfamarkaðurinn heldur áfram að hækka frá því í gær eftir miklar lækkanir að undanförnu.

Úrvalsvísitalan hækkar um 1,58% og er 6.130,32 stig.

Kögun hækkar mest, eða um 6,32%, Landsbankinn hækkar um 2,33%, Alfesca hækkar um 1,87% en félagið hefur hækkað um 3,87% síðustu vikuna, FL Group hækkar um 1,65% og Glitnir hækkar um 1,60%.

Tvö félög hafa lækkað það sem af er degi. Atorka Group lækkar um 0,84% en félagið hefur lækkað um 7,81% frá áramótum. Icelandic Group lækkar um 0,63%