Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,2% og er 4.513 stig við hádegi. Gengi krónu hefur styrkst um 0,9%  en við lok markaðar í gær veiktist það um 3,8%, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis.

Veltan á hlutabréfamarkaði nemur 706 milljónum króna.

Norska vísitalan OBX hefur hækkað um 0,3%. Danska vísitalan OMXC stendur í stað en sænska vísitalan OMXS hefur lækkað um 0,4%, samkvæmt upplýsingum frá Euroland.