Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,09% og er 6.322 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá M5. Veltan nemur 2.263 milljónum króna.

Hampiðjan hefur hækkað um 3,95%, 365 hefur hækkað um 1,3%, Kaupþing banki hefur hækkað um 0,49%, Eimskip hafa hækkað um 0,49% og Bakkavör Group hefur hækkað um 0,32%.

Mosaic Fashions hefur lækkað um 1,79%, Össur hefur lækkað um 1,78%, Marel hefur lækkað um 1,28%, Landsbankinn hefur lækkað um 1,28% og Actavis Group hefur lækkað um 0,75%.

Gengi krónu hefur veikst um 1,22% og er 125,2 stig við hádegi. Gerist það í kjölfar þess að viðskiptahalli á þriðja ársfjórðungi var meiri en búist var við, að sögn Beat Siegenthaler sérfræðings hjá TD Securities.