Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 1,54% og er 5.450 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvaktinni.

Landsbankinn hefur hækkað um 5,47%, Bakkavör Group hefur hækkað um 3,91%, Mosaic Fashions hefur hækkað um 3,23%, Alfesca hefur hækkað um 2,88% og Straumur hefur hækkað um 2,44%. Ekkert félag hefur lækkað það sem af er degi.

Gengi krónu hefur veikst um 0,40% og er 130,3 stig.