Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 1,97% það sem af er degi og er 5.465 stig, samkvæmt upplýsingum frá Kaupþingi banka.

Alfesca hefur hækkað um 2,22% og er eina félagið sem hækkað hefur en félagið birti uppgjör fyrir fyrstu níu mánuðina í dag.

Landsbankinn hefur lækkað um 4,11%, Straumur-Burðarás hefur lækkað um 2,41%, Kaupþing banki hefur lækkað um 2,37%, Mosaic Fashions hefur lækkað um 1,79% og FL Group hefur lækkað um 1,64%.

Gengi krónunnar hefur veikst um 0,45% og er gengisvísitala hennar 126,72.