Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 4,6% frá því að opnað var fyrir viðskipti kl. 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 12:00 í 687 stigum samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Rétt er að hafa í huga að fyrst í morgun var opnað fyrir viðskipti með hlutabréf eftir þriggja daga lokun. Þegar markaðir lokuðu á miðvikudag stóð Úrvalsvísitalan í 3.005 stigum en þegar opnað var á ný í morgun stóð vísitalan í 720 stigum.

Í millitíðinni var í raun búið að núlla út Kaupþing, Glitni og Landsbankann eins og greint var frá í gær og hefur Úrvalsvísitalan því lækkað um 76% í millitíðinni.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga. Bakkavör hefur lækkað talsvert í dag eða um 38,7%. Ef fer sem horfir hefur félagið lækkað um 89,7% frá áramótum.

Velta með hlutabréf er sáralítil eða 65 milljónir. Þar af eru 25 milljónir með bréf í Marel og annað eins í Össur. Þá er velta fyrir um 6,2 milljónir með bréf í Icelandair Group.

Opið er fyrir viðskipti með: Alfesca hf. Atlantic Airways, Atlantic Petroleum P/F, Atorka Group hf., Bakkavör Group hf., Eik Banki, Foroya Bank, Eimskipafélagið hf. , Icelandair Group hf., Marel hf., Nýherja hf., Sláturfélag Suðurlands svf., Teymi hf., Vinnslustöðin hf. (sem stefnir af markaði) og  Össur hf, samkvæmt upplýsingum frá Dow Jones fréttaveitunni.