Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,3% frá því að opnað var fyrir viðskipti kl. 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 12:05 í 394 stigum samkvæmt Markaðsvaktinni.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 38,9% gær og stóð við lok markaða í 403 stigum. Þá hélt hún áfram að lækka strax við opnun markaða í morgun en hefur hækkað lítillega aftur.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga en Exista heldur áfram að lækka. Félagið lækkaði um 97% í gær og hefur það sem af er degi lækkað um 21,4%.

Í gær voru heimiluð viðskipta á ný með Exista og Straum í fyrsta sinn í rúma tvo mánuði, eða eftir að Fjármálaeftirlitið stöðvaði viðskipti með öll fjármálafyrirtæki í Kauphöllinni þann 6. Október s.l.

Straumur lækkaði um 58,9% í gær en hefur aftur á móti hækkað um 1% í morgun.

Aðeins eitt félag, Bakkavör hefur hækkað í morgun en félagið hefur hækkað um 0,9%.

Það sem af er degi er heildarvelta með hlutabréf um 47 milljónir króna en þar af eru tæpar 32 milljónir króna með bréf í Marel.

Þá er velta fyrir rúmar 7,7 milljónir króna með bréf í Straum og tæpar 4,3 milljónir króna með bréf í Bakkavör.