Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur hækkað örlítið það sem af er degi eða um 0,03% og stendur nú í 5.213 stigum.

FL Group [ FL ] hefur hækkað mest félaga eða um 3,25%. Þá hefur Atlantic Petrolium [ FO-ATLA ] hækkað um 1,7% og Glitnir [ GLB ] um 0,9%.

Century Aluminum [ CENX ] hefur lækkað mesta félaga eða um 3,5%. Þá hefur Eik banki [ FO-EIK ] lækkað um 2,8% og 365 [ 365 ] um 2,2%.

Velta með hlutabréf er um 2,8 milljarðar en þar af eru um 1,7 milljarður með bréf í Glitni.