Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 39% frá því að opnað var fyrir viðskipti kl. 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 12:00 í 403 stigum samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 1,2% gær, og stóð við lok markaða í 660 stigum, en tók skarpa dýfu niður á við strax við opnun í morgun.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga en það eru Straumur og Exista sem draga Úrvalsvísitöluna svo verulega niður sem raun ber.

Síðan opnað var fyrir viðskipti með hlutabréf í Kauphöllinni í morgun hefur Exista lækkað um 97,8% og Straumur um 57,8%.

Í dag voru heimiluð viðskipta á ný með fyrrnefnd félög í fyrsta sinn í rúma tvo mánuði, eða eftir að Fjármálaeftirlitið stöðvaði viðskipti með öll fjármálafyrirtæki í Kauphöllinni þann 6. Október s.l.

Ekki eru mikil viðskipti með bréf í Exista en í 27 viðskiptum hafa um 786 þúsund krónur skipt um hendur.

Það sem af er morgni er heildarvelta með hlutabréf um tæpar 225 milljónir króna. Þar af eru um tæpar 99,5 milljónir króna með bréf í Straum.

Þá er velta fyrir tæpar 82 milljónir króna með bréf í Marel, rúma 21 milljón króna með bréf í Bakkavör  og tæpar 11 milljónir króna með bréf í Össur.