Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,2% frá því að opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 11:55 í 3.053 stigum, samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,2% í gær og hélt áfram að lækka við opnun markaða í morgun.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga en ekkert félag hefur hækkað það sem af er degi.

Í gær voru viðskipti með fjármálafyrirtæki stöðvuð af fjármálaeftirlitinu og hafa enn ekki verið leyfð á ný þannig að velta með hlutabréf er sáralítil eða 104 milljónir króna.

Þar af eru rúmar 50 milljónir króna með bréf í Össur og tæpar 27 milljónir með bréf í Marel.

Þá er velta fyrir tæpar 18 milljónir með bréf í Bakkavör en nokkuð minni velta er með bréf í öðrum félögum og engin velta í öðrum.