Úrvalsvísitalan (OMXI6) hefur hækkað um 0,1% frá því að opnað var fyrir viðskipti kl. 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 12:00 í 899 stigum samkvæmt Markaðsvaktinni.

Gamla Úrvalsvísitalan (OMXI15) hefur lækkað um 0,2% og stendur nú í 334 stigum.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga í Kauphöllinni.

Velta með hlutabréf er um 70 milljónir króna en þar af eru rúmar 35 milljónir króna með bréf í Straum.

Þá er velta fyrir rúmar 30,5 milljónir króna með bréf í Marel og tæpar 2 milljónir króna með bréf í Century Aluminum.