Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,7% frá því að opnað var fyrir viðskipti kl. 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 12:15 í 658 stigum samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,3 í gær og hélt áfram að lækka í morgun.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga.

Velta með hlutabréf er tæpar 100 milljónir króna en þar af eru rúmar 50 milljónir með bréf í Marel.

Þá er velta fyrir tæpar 40 milljónir króna með bréf í Össur og um 5 milljónir með bréf í Bakkavör.