Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur lækkað um 1% frá því opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 12:05 í 4.202 stigum.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu lækkanir einstakra félaga.

Velta með hlutabréf er tæpar 750 milljónir. Þar af eru tæplega 250 milljónir með bréf í Exista [ EXISTA ], rúmlega 180 milljónir með bréf í Marel [ MARL ], um 120 milljónir með bréf í Landsbankanum [ LAIS ] og 100 milljónir með bréf í Kaupþing [ KAUP ] en talsvert minni velta er með hlutabréf í öðrum félögum.

Krónan hefur veikst lítillega eða um 0,1% frá opnum gjaldeyrismarkaða og er gengisvísitalan nú 158,9 stig.