Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 1,09% og er 6.704 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum Markaðsvakt Mentis. Kauphöllin hefur verið opin í tvo og hálfan dag og nemur hækkun úrvalsvísitölunnar 4,55% á tímabilinu.

?Engin einhlít skýring er á mikilli hækkun hlutabréfaverðs þessa fyrstu viðskiptadaga ársins. Verðmat Citigroup á Kaupþingi, sem fjallað var um í gær, hefur vissulega ýtt undir hlutabréfaverð og áhrif lækkunar lánshæfismats S&P á íslenska ríkinu hafa verið að minnka.

Rekstur flestra fyrirtækja í Kauphöllinni er mjög alþjóðlegur og síminnkandi hlutfall umsvifa fyrirtækjanna er hér á landi. Fyrirséð stöðnun í hagkerfinu hér á landi á þessu ári hefur því hverfandi áhrif á framlegð og hagnað fyrirtækjanna. Sögulega hátt vaxtastig hér á landi hefur einnig takmörkuð áhrif á rekstur þeirra en gefur fjárfestum hins vegar kost á hárri áhættulausri ávöxtun,? segir greiningardeild Glitnis.

Teymi hefur hækkað um 5,82%, sé litið til síðustu fjögra vikna hafa bréfin hækkað um 35,82%, FL Group hefur hækkað um 2,22%, Landsbankinn hefur hækkað um 1,42%, Actavis Group hefur hækkað um 1,37% og Exista hefur hækkað um 1,27%.

365 hefur lækkað um 0,83% og Icelandair Group hefur lækkað um 0,36%.

Gengi krónu hefur veikst um 0,08% og er 125,8 stig.