Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,1% frá því að opnað var fyrir viðskipti kl. 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 12:00 í 653 stigum samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,1% í gær.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga.

Velta með hlutabréf er tæplega 30 milljónir krónur en þar af eru um 20 milljónir með bréf í Össur.

Þá er velta fyrir tæpar 5,3 milljónir króna í Föroya banka og um 3,7 milljónir með bréf í Bakkavör.