Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 1,44% það sem af er degi og er 6.827,18 stig.

FL Group hækkar mikið þriðja daginn í röð, eftir tilkynningu um að skrá Icelandair Group á hlutabréfamarkað, en félagið hefur hækkað mest félaga í dag eða um 3,83% það sem af er degi. Síðustu tvo daga hefur félagið hækkað um 9,44%.

Íslandsbanki hefur hækkað næst mest, eða um 3,72% og Landsbankinn hefur hækkað um 2,41%.

Tvö félög hafa lækkað í dag. Marel hefur lækkað um 1,39% og Alfesca, sem áður hét SÍF, lækkað um 0,50%.