Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,78% og er 8.343 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Veltan nemur 6,4 milljarða króna.

Atlantic Petroleum hefur hækkað um 2,83%, Century Aluminium hefur hækkað um 1,99%, Kaupþing, Föreya banki og Alfesca hafa hækkað um hækkað um 1,7%.

365 hefur lækkað um 1,65%, Össur hefur lækkað um 0,46%, Actavis Group hefur lækkað um 0,33% og Straumur-Burðarás hefur lækkað um 0,23%.

Gengi krónu hefur styrkst um 0,38% og er 114,2 stig.