Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,19% og er 5.332 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Veltan nemur um 89 milljónum króna.

Alfesca hefur hækkað um 0,96%, Straumur-Burðarás hefur hækkað um 0,63%, Mosaic Fashions hefur hækkað um 0,59%, Össur hefur hækkað um 0,46% og Avion Group hefur hækkað um 0,31%.

Dagsbrún hefur lækkað um 0,74%.

Gengi krónu hefur styrkst um 0,12% og gengisvísitalan er 125 stig.