Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,29% og er 5.498,49 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni.

Atorka Group hefur hækkað um 0,64%, Avion Group hefur hækkað um 0,59%, Landsbankinn hefur hækkað 0,46% og Atlantic Petroleum hefur hækkað um 0,34%.

Mosaic Fashions hefur lækkað um 2,30%, Actavis Group hefur lækkað um 1,42%, Dagsbrún hefur lækkað um 0,88%, Bakkavör Group hefur lækkað um 0,80% og Kaupþing banki hefur lækkað um 0,27%.

Gengi krónu hefur veikst um 0,12% og er gengisvísitala hennar 131,04, samkvæmt upplýsingum frá Kaupþingi banka.