Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 1,36% það sem af er degi og er 5.427,91 stig, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni.

Flaga Group hefur hækkað um 0,76% og Össur hefur hækkað 0,47% en Glitnir hækkaði í dag verðmat sitt á félaginu.

Mosaic Fashions hefur lækkað um 3,61%, FL Group hefur lækkað um 2,65%, Landsbankinn hefur lækkað um 1,90%, Bakkavör Group hefur lækkað um 1,85% og Glitnir hefur lækkað um 1,78%.

Gengi krónunnar hefur veikst um 0,68% og er gengisvísitala hennar 128,72 stig, samkvæmt upplýsingum frá Kaupþingi banka.