Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur lækkað um 1,6% frá því opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 12:05 í 4.053 stigum.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,2% í gær og hóf að lækka enn frekar strax við opnun markaða í morgun. Þetta er nú þriðji dagurinn í röð sem vísitalan lækkar.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga en aðeins tvö félög, Föroya banki [ FO-BANK ] og Eik banki [ FO-EIK ] hafa hækkað í Kauphöllinni í morgun.

Velta með hlutabréf er um 2,2 milljarðar króna. Þar af eru rúmlega milljarður með bréf í Kaupþing [ KAUP ], tæpar 600 milljónir með bréf í Landsbankanum [ LAIS ], tæpar 120 milljónir með bréf í Exista [ EXISTA ] og um 115 milljónir með bréf í Alfesca [ A ] en minni velta er með bréf í öðrum félögum og engin velta í öðrum.

Krónan hefur veikst töluvert í morgun eða um 2,5% og er gengisvísitalan nú 165,6 stig.