Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,2% frá því að opnað var fyrir viðskipti kl. 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 12:15 í 655 stigum samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,4% í gær en hækkaði lítillega við opnun í morgun.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga.

Velta með hlutabréf er sáralítil eða tæpar 3 milljónir króna en þar af eru tæpar 800 þúsund krónur með bréf í Bakkavör.