Úrvalsvísitalan stendur í stað frá því að opnað var fyrir viðskipti kl. 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 12:05 í 658 stigum samkvæmt Markaðsvakt Mentis.
Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,7% í gær en hefur lítið hreyfst í morgun.
Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga. Aðeins eitt félag, Icelandair Group hefur hækkað í morgun eða um 0,9%. Viðskipti með bréf í félaginu nema þó aðeins rétt tæplega 100 þúsund krónum.
Velta með hlutabréf er tæpar 35 milljónir króna en þar af eru rúmar 16 milljónir með bréf í Marel.
Þá er velta fyrir rúmar 14 milljónir króna með bréf í Össur.