Úrvalsvísitalan stendur í stað frá því að opnað var fyrir viðskipti kl. 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 12:10 í 654 stigum samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,6% í gær og hefur lítið hreyfst það sem af er degi.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga en aðeins eitt félag, Össur hefur hækkaði í morgun. Össur leiddi hækkun gærdagsins.

Velta með hlutabréf er rétt rúmlega 9 milljónir krónur en þar af eru tæpar 5,5 milljónir með bréf í Össur.

Þá er velta fyrir um 1,5 milljónir króna í Marel.