Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,7% frá því opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 12:10 í 4.215 stigum.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga en sú staða hefur lítið breyst í morgun.

Velta með hlutabréf er tæpir 1,2 milljarðar króna.

Þar af eru rúmar 300 milljónir með bréf í Landsbankanum, um 215 milljónir með bréf í Glitni, rúmar 210 milljónir með bréf í Kaupþing og rúmar 190 milljónir með bréf í Straum en minni velta er með bréf í öðrum félögum.

Krónan hefur styrkst í morgun um 0,3% og er gengisvísitalan nú 159,3 stig.