Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,1% frá því að opnað var fyrir viðskipti kl. 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 12:05 í 654 stigum samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Úrvalsvísitalan hækkaði í gær um 1,8% og var það í fyrsta skipti sem hún hækkaði eftir að ríkið yfirtók bankanna fyrr í þessum mánuði.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga en aðeins eitt félag, Eimskipafélagið hefur hækkað það sem af er degi.

Heildarvelta með hlutabréf það sem af er degi er um 15 milljónir en þar af eru 10,2 milljónir með bréf í Marel og rúmlega 1,3 milljón með bréf í Atorku.